06.05.1936
Neðri deild: 64. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í B-deild Alþingistíðinda. (330)

5. mál, ríkisútgáfa námsbóka

1) ÁÁ:

Ég hefi engar brtt. borið fram um þetta mál og hefi greitt atkv. gegn brtt. annara, svo að málið þyrfti ekki að fara á milli deilda svo seint á þingi. En það þýðir ekki, að ég hefði ekki viljað koma framt ýmsum brtt. við frv. Annars þarf efalaust að breyta frv. innan skamms við fengna reynslu og þar sem aðaltilganginum verður að teljast náð með þessu frv. eins og það liggur fyrir, greiði ég atkv. með því og segi já.