01.04.1936
Efri deild: 39. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í B-deild Alþingistíðinda. (538)

7. mál, þingsköp Alþingis

Magnús Guðmundsson:

Ég vil leyfa mér að fara fram á það við hæstv. forseta, að hann taki þetta mál af dagskrá, til þess að n. geti borið sig saman um miðlunartill. þá, sem hv. 2. þm. Rang. bar hér fram í gær. N. hefir fund svo snemma á morgun, að þá er óhætt að taka málið á dagskrá aftur. Ég sé ekki, að það geti verið hættulegt að fresta málinu um einn dag.