25.03.1936
Neðri deild: 33. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 560 í B-deild Alþingistíðinda. (738)

18. mál, útsvör

Ólafur Thors:

Ég er efnislega samþykkur þessari brtt. en það hefir verið upplýst hér í umr., að það fari betur á því og sé e. t. v. eina rétta leiðin að ná sama tilgangi með breyt. á sveitarstjórnarlögunum. Ég mun því, ef þessi till. fellur, flytja breyt. við 1. gr. sveitarstjórnarlaganna frá 1927, ef flm. hennar gerir það ekki sjálfur, sem efnislega miðar að þessu sama, og segi því nei við þessa atkvgr.