08.04.1936
Efri deild: 47. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 587 í B-deild Alþingistíðinda. (812)

93. mál, Menningarsjóður

*Frsm. (Jónas Jónsson):

Það kom í ljós eftir 2. umr., að gera þurfti smábreyt. á frv., sérstaklega í sambandi við þá breyt., sem gerð var á upphaflegu lögunum 1929 og voru lagfæringar á smíðagöllum. Breyt. eru ekki aðrar en sú, sem gerð var við 2. umr., þegar samþ. var að fella niður útgáfustjórn og að menntamálaráðið skyldi sjálft hafa með þetta að gera. Af því að hér er aðeins um formsbreyt. að ræða, en ekki efnisbreyt., sé ég ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum.