23.03.1936
Efri deild: 31. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 642 í B-deild Alþingistíðinda. (934)
85. mál, ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Hv. þm. má ekki taka orð mín svo, að ég lofi því, að ríkissjóður skuli greiða þetta. Ég get ekkert um það sagt. En þegar allar umsóknir eru komnar og það sýnir sig, hve langt upphæðin hrekkur, mun þetta verða tekið til nánari athugunar. Annars hefir landlæknir málið til athugunar, eins og ég tók fram áðan.