20.04.1936
Efri deild: 52. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í B-deild Alþingistíðinda. (948)
85. mál, ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla
*Magnús Jónsson:
Ég heyri á þeim skýringum, sem ég hefi fengið, að ég hefi litið rétt á þetta, og ef litið er á það, að berklakostnaðurinn er kringum 1 millj. kr. og að gjaldið, sem nú er innheimt frá sýslu- og bæjarfélögum, 2 kr. á mann, er þá eftir íbúafjölda um 230 þús. kr., þá sér maður, að þessi 1/5 sem verður að koma úr héruðunum, er mjög líkur 2 kr. gjaldinu. Það munu koma um 200 þús. kr. frá héruðunum í stað þess, að nú koma þaðan 230 þús. kr. Ég sé því ekki, að þetta nái þeim tilgangi, sem hv. flm. frv. ætlast til.
Ég verð að segja það, að enda þótt 8. gr. sé betur orðuð og til meira öryggis í brtt. frá n., þá býst ég samt við, að þetta fari alveg eins og nú er í framkvæmdinni, að þetta lendi yfirleitt á hinum opinberu sjóðum, og það er líka á það lítandi, að innheimtan frá sýslu- og bæjarfélögum hefir stundum gengið treglega.