20.02.1936
Neðri deild: 4. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 650 í B-deild Alþingistíðinda. (963)

6. mál, lax- og silungsveiði

*Flm. (Jörundur Brynjólfsson):

Frv. þetta lá fyrir þessari hv. d. á síðasta þingi og var afgr. héðan til Ed., en dagaði þar uppi. Nú er það flutt aftur eins og það var afgr. af hálfu þessarar deildar, og sé ég því ekki ástæðu til að fjölyrða um það frekar. Hvort því verður aftur vísað til landbn., sem hafði það til meðferðar síðast, læt ég mig engu skipta, og mun því ekki setja mig á móti því, ef þess verður óskað. Þá vil ég geta þess, að prentvilla hefir orðið í 2. tölulið 1. gr. Þar stendur: „sem fullur sér,“ en á að vera: „sem fellur sér.“ Þetta verður lagfært við endurprentun frv.

Vænti ég svo, að hv. dm. lofi frv. að ganga áfram.