07.04.1937
Efri deild: 33. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 407 í B-deild Alþingistíðinda. (1025)
58. mál, klaksjóður og klakstöðvar
*Jónas Jónsson:
Þetta mál var næstum búið að ná samþykki þingsins í fyrra og hefir nú verið tekið upp aftur af okkur flm. eins og skilið var við það. Þetta mál hefir verið í landbn., en þar sem búið er að athuga það mjög rækilega, sé ég ekki ástæðu til, að n. fari að gera frekari athuganir á því núna, þótt ef til vill mætti einhverju breyta.
Ég vil svo aðeins geta þess, að eins og nú er komið, nær þetta frv. eingöngu til laxaklaks í S.-Þingeyjarsýslu og Norðausturlandi, þar með talinn Eyjafjörður. Það er ekki hægt að vinna upp laxaklak í Eyjafirði, Eyjafjarðará og svo hinum tveim ánum, sem þar er um að ræða í þessu sambandi, af því að það er ekki hægt að flytja hrogn þangað. Það er því ekki hægt að gera Eyjafjarðará að mikilli laxá, nema því aðeins, að þetta „plan“, sem hér um ræðir, komist í framkvæmd, sem sé að Laxá í Þingeyjarsýslu verði friðuð um nokkur ár og þaðan verði flutt seiði til Eyjafjarðar og N.-Þingeyarsýslu, og svo í aðrar ár í Suður-Þingeyjarsýslu.
Hér fyrir sunnan verður tæplega hugsað mikið um þetta mál, því að það er nú búið að gera stórt klakhús í Borgarfirði, svo að þetta frv. verður aðallega að dæmast eftir því, hvort menn vilja gera tilraunir með Laxá, og ég hygg, eftir því sem þessu máli var tekið í fyrra, að því muni verða vel tekið núna, því að í rauninni var það aðeins tímaleysi, sem olli því, að málið náði ekki samþykki í fyrravetur.