09.04.1937
Efri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 407 í B-deild Alþingistíðinda. (1028)
58. mál, klaksjóður og klakstöðvar
*Jón Baldvinsson:
Hv. þm. S.-Þ. gerði við síðustu umr. grein fyrir því, hvað er aðalefni þessa frv. og hve nauðsyn er mikil á að fá klakstöð í á á Norðurlandi til að dreifa laxaseiðum um árnar þar. Undanfarið hefir verið mótstaða mikil gegn því að taka Laxá og Bugðu til þessarar laxaræktar, og höfum við því fellt það úr, en aðeins haldið eftir réttinum til veiðiréttar.
Vona ég, að hv. d. geti fallizt á þessar till. og frv. í heild, svo að það komist í gegn á þessu þingi.