20.03.1937
Neðri deild: 23. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (103)
16. mál, skuldaskilasjóður vélbátaeigenda
*Frsm. (Finnur Jónsson):
Þetta frv. er staðfesting á bráðabirgðal., sem gefin voru út í fyrra að afloknu þingi með samþykki allra flokka, til þess að tryggja línuveiðaeigendum skuldaskil. Nú hefir það komið í ljós, að eftir að búið er að verja 250 þús. kr., sem um ræðir í l. um skuldaskil línuveiðaskipa, þá munu vera eftir í sjóðnum um 200 þús. kr. Þar sem búið er að taka lán til þessarar stofnunar skuldaskilasjóðs vélbátaeigenda, þá munu allflestir nm. sjútvn. líta svo á, að rétt sé, að þessari upphæð, sem eftir er, verði eingöngu varið til þess að veita vélbátaeigendum frekari skuldaskil heldur en hafa farið fram. Árferði hefir, síðan skuldaskilasjóði var lokað fyrir vélbátaeigendum, hvergi nærri verið gott. Hinsvegar veit ég ekki, á hvern hátt þessi nýju fjárframlög verða veitt, en eftir tilmælum skuldaskilasjóðsstjórnarinnar var sjútvn. sammála um að leggja til, að þessu máli verði vísað nú til 3. umr., en sennilegt, að brtt. komi fram frá nm. við 3. umr.