20.04.1937
Efri deild: 50. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í B-deild Alþingistíðinda. (1200)

159. mál, borgfirzka sauðfjárveikin

Þorsteinn Þorsteinsson:

Áður en gengið er til atkv. vil ég benda á villu, sem komið hefir inn í frv. eftir að því var breytt af n. Í 4. gr. frv. stendur a–f lið, en samkv. breyt. hefir f-liður fallið niður. E. t. v. mætti leiðrétta þetta áður en atkvgr. fer fram, eða skoða það sem prentvillu.