16.03.1937
Sameinað þing: 7. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 477 í B-deild Alþingistíðinda. (1236)

Sætaskipun í sameinuðu þingi

*Jörundur Brynjólfsson:

Út af þessari fyrirspurn hæstv. forseta vil ég geta þess, að því mun hafa verið hreyft af hálfu nokkurra þm. Nd. að fá samkomulag um sætaskipun innan d. eftir flokkum. Ég hygg, að það hafi ekki orðið fyrir þá sök, að dregið var um sæti í d. Mér er ekki kunnugt um, að nein breyting hafi þar á orðið.

Ég hefi að vísu veitt því athygli, að menn hafa stöku sinnum setzt í önnur sæti í Nd. en þeir drógu, og hefir ekki verið um slíkt fengizt. Ég held, að ég geti svo ekki upplýst fleira í þessu efni.