10.03.1937
Efri deild: 18. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í B-deild Alþingistíðinda. (1243)

Afgreiðsla þingmála

forseti (SÁÓ):

Þar sem 8 hv. þm. Ed. hafa tilkynnt veikindaforföll, er ekki hægt að halda lögmætan þingfund í dag í þessari hv. d. Verða því þau 2 mál, sem á dagskrá eru, tekin af dagskrá, sem eru: Frv. til l. um breyt. á 10. gr. tilsk. um fjárforráð ómyndugra o. s. frv., 20. mál, og frv. til l. um breyt. á l. nr. 44 23. júní 1932, um skipun læknishéraða, verksvið landlæknis og störf héraðslækna, 60. mál. Segi ég svo þessum fundi slitið — svo langur sem hann var.