10.03.1937
Neðri deild: 18. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í B-deild Alþingistíðinda. (1244)

Afgreiðsla þingmála

forseti (JörB):

Það er séð, að þingfundum verður ekki haldið áfram sökum sjúkleika, nefndastörf geta ekki farið fram nema að litlu leyti og ekki er unnt að fá þingskjöl prentuð. Þar sem þannig er ástatt um heilsufar manna bæði á þingi og utan þings, sé ég ekki til neins að tilkynna dagskrá nú. Næsti fundur verður boðaður með dagskrá.