13.04.1937
Neðri deild: 37. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í B-deild Alþingistíðinda. (1251)

Afgreiðsla þingmála

*Gísli Guðmundsson:

Ég ætla aðeins að minna hér á tvö mál, sem ég gerði um fyrirspurn til allshn. þessarar d. fyrir stuttu og ekki hefir enn bólað á frá þeirri hv. n. Annarsvegar frv. til l. um Raufarhafnarlæknishérað, sem útbýtt var 1. marz hér í d. og var vísað til þessarar n. 4. marz, og í öðru lagi frv. til l. um byggingarsamvinnufélög, sem útbýtt var hér í d. 6. marz, en vísað var til þessarar n. 15. marz.

Ég spurðist nýlega fyrir um þessi mál hér í d., en hefi samt ekki orðið þess var, að síðan hafi allshn. skilað álitum um þau. Ég vil mælast til þess við hæstv. forseta, að hann hlutist til um, að n. afgr. þessi mál frá sér með því að skila áliti um þau.