23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í C-deild Alþingistíðinda. (1360)
82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég vil benda á það, að ef samþykkja á að varpa út umr. um þetta mál í dag, þá er fresturinn of stuttur fyrir fólk út um land, til þess að það geti safnazt saman til að hlusta. Verði umr. hinsvegar á morgun kl. 4, þá er hægt að tilkynna þær í útvarpinu í dag.