23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í C-deild Alþingistíðinda. (1362)

82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Ég vil geta þess, að það kom í útvarpinu í gærkvöldi, að til stæði að umr. færu fram um þetta mál í dag, og nú er hádegisútvarpinu einmitt haldið opnu, til þess að hægt sé að tilkynna nánar um þetta.