30.03.1937
Neðri deild: 27. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í C-deild Alþingistíðinda. (1390)

82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs

Ólafur Thors:

Áður en hæstv. forseti svarar því, vil ég aðeins biðja hann að athuga, hvort aldrei hafi legið neitt hér fyrir hv. d. um ráðstafanir til að fyrirbyggja okur og því um líkt, sem hv. 2. þm. Reykv. hafi tekið þátt í atkvgr. um, og ef svo væri, að hann hafi gert það, mun vera til dæmi um, að hann hafi greitt atkv. í sjálfs sín sök, og mætti þá jafna því saman hér.