18.02.1937
Efri deild: 4. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í C-deild Alþingistíðinda. (1469)

15. mál, sauðfjárveiki

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég býst ekki við því, að fram komi fleiri frv. frá stj. um þessa hlið málsins, en geri ráð fyrir, að upp úr þessu frv. verði samin þau lög, sem hv. þm. Dal. telur þörf á. Geri ég ráð fyrir, að hv. 2. þm. N.-M. starfi með nefndinni að meðferð frv., og jafnframt prófessor sá, er hefir haft rannsókn veikinnar með höndum.