20.02.1937
Neðri deild: 6. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í C-deild Alþingistíðinda. (1481)

22. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Framsaga hv. frsm. gefur ekki tilefni til þess að ræða þetta mál mikið við þessa umr., enda var málið mikið rætt á síðasta þingi. Mín skoðun var þá sú, að ekki væri fært að samþ. frv. eins og það liggur fyrir nú. Og mín aðaltill. var, að ef eitthvað ætti í þessu að gera, þá yrði það að vera í því formi, eins og frv. var í, þegar það kom frá Ed.

Sé ég ekki ástæðu til að fara út í þetta nánar að svo komnu. En ég vildi aðeins óska, að hv. fjhn. athugi málið mjög gaumgæfilega og óska að eiga tal við þá hv. n. áður en hún gefur út álit um málið.