16.02.1937
Sameinað þing: 2. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (15)

Kosning fastanefnda

Forseti (JBald):

Ef ekki kemur fram tillaga um að fresta kosningunni, mun ég láta hana fara fram. (HannJ: Það hafa engin mótmæli komið fram gegn minni tillögu). Ef ekki kemur fram sérstök tillaga um að fresta kosningunni, læt ég hana fara fram. (HannJ: Ég ber gjarnan fram tillögu um að fresta kosningunni). Ég skal gera það fyrir hv. þm. að bera upp till. hans.