19.04.1937
Neðri deild: 43. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í C-deild Alþingistíðinda. (1733)

84. mál, sala mjólkur og rjóma o. fl.

Forseti (JörB):

Eins og kunnugt er, þá hafa verið ákveðnar útvarpsumræður um þetta mál. En það hefir verið farið fram á að þau afbrigði frá þingsköpum verði leyfð, að ræðulengd megi að þessu sinni vera 1 klst. Ég vil því leyfa mér að bera þetta undir hv. deild.