05.04.1937
Efri deild: 32. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í B-deild Alþingistíðinda. (180)

13. mál, Kreppulánasjóður

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég hefi ekki rætt um það við hv. n., hvort hún geti fallizt á, að umr. um málið verði frestað í dag, en mér er kunnugt um, að hæstv. ráðh. óskar að koma með brtt. við till. n., en þar sem hann hefir boðað veikindaforföll, þá tel ég ekki málinu stofnað í neina hættu, þótt það sé tekið út af dagskrá í dag.