23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í C-deild Alþingistíðinda. (1856)

94. mál, rafmagnsveita Reykjavíkur og sala á rafmagnstækjum

*Flm. (Pétur Halldórsson):

Ég hefi ekkert á móti því, sem fram hefir komið í ræðum þeirra hv. þm., sem töluðu, og allt miðaði í sömu átt og sjálfur tilgangur frv. Ég mun að sjálfsögðu taka vel í allar till., sem fram kunna að koma og miða að því að gera fólki auðveldara að afla sér þessara tækja.