15.02.1937
Sameinað þing: 1. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (2)

Konungsboðskapur

Stóð þá upp Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn., og mælti:

„Íslenzka þjóðin og konungur Íslands lengi lifi“.

Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Forsætisráðherra kvaddi þessu næst elzta þingmanninn, Sigfús Jónsson, 2. þm. Skagf., til þess að stýra fundi þar til er kosinn væri forseti sameinaðs þings. Aldursforseti gekk þá til forsetastóls og tók við fundarstjórn.