10.04.1937
Efri deild: 36. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 776 í C-deild Alþingistíðinda. (2101)
69. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga
Bernharð Stefánsson:
Mig langar til að spyrjast fyrir um það, hvað afgreiðslu líður á frv., sem ég bar fram snemma á þinginu og vísað var til hv. allshn., það er frv. um tekjur bæjar- og sveitarfélaga. Ég vænti þess að fá góð svör frá n., en annars vil ég mælast til þess við hæstv. forseta, að hann fari að taka málið á dagskrá til 2. umr.