10.04.1937
Efri deild: 36. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 776 í C-deild Alþingistíðinda. (2102)

69. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

Sigurjón Á. Ólafsson:

Út af fyrirspurn hv. 1. þm. Eyf., sem mun vera beint til allshn., skal þess getið, að n. hefir haldið nokkra fundi um þetta mál, en það var enginn áhugi hjá henni á því að afgreiða það út úr n., þar sem nú lítur út fyrir, að þinglok séu skammt fram undan. Það var því talið þýðingarlaust að taka málið fyrir, enda var líklegt, að nefndarmenn gætu ekki orðið sammála um frv. eins og það lá fyrir.