09.04.1937
Efri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 778 í C-deild Alþingistíðinda. (2113)

71. mál, búfjársjúkdómar

*Frsm. (Páll Hermannsson):

Þegar landbn. hafði þetta mál til meðferðar var einn nm. forfallaður, en við hv. 2. þm. Rang. urðum á eitt sáttir um að leggja frv. fram óbreytt með tilliti til þess, að það yrði samþ. Okkur leizt svo á, að þessar ráðstafanir, sem hér er um að ræða, séu mjög nauðsynlegar, og ég vil því leggja til, að þessi hv. deild samþ. frv.