07.04.1937
Efri deild: 33. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 831 í C-deild Alþingistíðinda. (2191)

96. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Forseti (EÁrna):

Þessar umr. hafa nú gerzt nokkuð almennar og fremur heyrt til 3. umr. en 2. En þar sem umr. hafa nú staðið í 3 tíma, vil ég mælast til þess, að menn hagi ræðum sínum svo, að umræðum geti orðið lokið kl. 31/2. Ég mun því skipta ræðutíma milli andstæðinga málsins og hinna þannig, að hver ræða taki hér eftir ekki nema 10 mínútur, og ber þetta undir deildina samkv. þingsköpum.