08.04.1937
Efri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 852 í C-deild Alþingistíðinda. (2237)

114. mál, stuðningur við togaraútgerðina

Forseti (EÁrna):

Í sambandi við þetta mál vil ég geta þess, að mér hefir borizt tilkynning um það frá flokkum þingsins, að það hafi orðið samkomulag um að hafa ræðutíma fyrir hvern flokk um málið 60 mínútur, en samkv. þingsköpum eru hverjum flokki ekki ætlaðar nema 45 mínútur. Til þess að þetta geti orðið, að ræðutíminn verði 60 mínútur fyrir hvern flokk, þarf afbrigði frá þingsköpum, og vil ég þá leita þeirra afbrigða.