08.04.1937
Efri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í C-deild Alþingistíðinda. (2260)

125. mál, Landsbanki Íslands

*Jón Baldvinsson:

Ég vil vekja athygli hv. deildar og hv. flm. á því, að fyrir Nd. liggur frv., sem felur í sér þessi atriði, sem frv. ræðir um, en er víðtækara en þetta frv. um stjórn Landsbankans. Er þar gert ráð fyrir, að stjórn hans sé á hverjum tíma í samræmi við meiri hl. á Alþ. Tel ég því eðlilegt, að þetta frv. sé lagt til hliðar um stund og bíði eftir, hvað verður um hitt frv. Ég skal ekki setja mig á móti því, að málið fari í n., en vænti, að það fái að hvíla sig þar.