14.04.1937
Neðri deild: 38. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í D-deild Alþingistíðinda. (2272)

119. mál, byggingar- og landnámssjóður

*Sigurður Einarsson:

Ég vil gera það að till. minni, að máli þessu sé vísað til stj., og ég geri ekki ráð fyrir, að hv. 2. þm. N.-M geti verið á móti því, þar sem honum fannst slíkt ráð aðeins fyrir hendi um mál það, er hér var til umræðu síðast (þáltill. um hýsing þjóðjarða). Enda er það svo, að ég sé ekki, að till. þessarar sé nein þörf, því að ég geri ekki ráð fyrir, að það þurfi sérstaklega að brýna landbrh. til þess að láta nota lánsheimild þá, sem felst í lögum byggingar- og landnámssjóðs