16.03.1937
Sameinað þing: 7. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í D-deild Alþingistíðinda. (2310)
46. mál, meðferð utanríkismála o. fl.
Ólafur Thors:
Ég get strax svarað tilmælum hæstv. forseta á sömu lund og ég gerði á síðasta fundi, þegar mál þetta var til meðferðar, nefnilega þannig, að ef hæstv. forseti telur ekki þinglegt eða eðlilegt að fresta umr. málsins og vísa báðum till. eins og þær liggja fyrir til n., þá höfum við flm. brtt. á þskj. 71 með samþ. okkar flokksbræðra ákveðið að verða við þeim tilmælum, að taka till. aftur til síðari umr., til þess að hún verði rædd í utanríkismálan. ásamt með aðaltill. á þskj. 46.
Ég veit ekki, hvort ég hefi tekið rétt eftir ræðu hv. þm. S.-Þ. um eitt atriði, sem ég vil láta koma skýrt fram í umr. Mér heyrðist hv. þm. láta orð falla um það, að við umr. um þetta mál á Alþingi 1928 hafi ekki verið lögð höfuðáherzla á 6. gr. sambandsl. Ef þetta er rétt tekið eftir hjá mér, þá vil ég láta það koma skýrt fram, að einmitt 6. gr. sambandsl. var kjarni umr. um þetta mál á Alþ. 1928 og það ákvæði sambandsl., sem flm. till., þáv. hv. þm. Dal. Sigurður Eggerz. lagði höfuðáherzluna á í öllum umr. um málið. við sjálfstæðismenn erum nú í dag alveg sömu skoðunar og sá hv. þm. var þá, og við vorum þá, að ákvæði 6. gr. séu aðalannmarki á sambandslögunum. vil ég því leggja mikla áherzlu á, að það komi skýrt fram nú við þessar umr., að Alþ. allt sé óskipt þeirrar skoðunar, að enginn Íslendingur hugsi sér, að ákvæði þessarar 6. gr. verði endurnýjuð í einu eða öðru formi.
Í öðru lagi vil ég svo bara taka undir það, sem hv. þm. S.-Þ. sagði í lok sinnar ræðu, að till. okkar sjálfstæðismanna á þskj. 71 væri miklu víðtækari í einu og öllu, ákveðnari og skýrari heldur en þáltill. á þskj. 46. Einmitt með þeim rökum vil ég vona, að hæstv. Alþ. geti fallizt á að samþ. till. á þskj. 71, annaðhvort eins og hún liggur fyrir eða með orðabreyt., sem óskað kynni að verða eftir, ef þær orðabreyt. breyta ekkert efni till.