01.04.1937
Sameinað þing: 8. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í D-deild Alþingistíðinda. (2314)

46. mál, meðferð utanríkismála o. fl.

*Bjarni Ásgeirsson:

Hv. þm. G.-K. mun vera kunnugt um það frá fyrri árum, að nokkrir örðugleikar eru á því að fá utanríkismálanefnd saman á fund meðan þing situr. Ég hefi ekki gleymt þeirri þáltill., sem hann var að tala um, en hefi gert margar tilraunir til að kalla saman fund í n. til að ræða till., þó ég hafi ekki átt um það tal við þennan hv. þm. Margvíslegar annir hv. þm. hafa valdið því, að fundur í n. hefir farizt fyrir til þessa, en ég hefi ákveðið að reyna að kalla fund saman í n. fyrir næstu helgi, og vil ég mega vænta þess, að þessi hv. þm. hlutist til um, að menn úr hans flokki, er sæti eiga í n., sæki þann fund.