15.04.1937
Sameinað þing: 10. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í D-deild Alþingistíðinda. (2318)
46. mál, meðferð utanríkismála o. fl.
*Héðinn Valdimarsson:
Eins og hv. frsm. tók skýrt fram, er Alþfl. samþykkur þessari till., eins og aðrir þeir flokkar, sem eiga fulltrúa í utanrmn. En þessi breyt., sem hér er lagt til, að verði gerð, er að okkar áliti engin efnisbreyting, eða að neitt felist í henni annað en það, sem fólst í fyrri till. og þeim yfirlýsingum, sem gefnar hafa verið af hálfu Alþfl., svo að í raun og veru var engin ástæða til að breyta þar um. En vegna þess að það var mjög æskilegt, að enginn reipdráttur væri um orðalag till., eða að menn gætu reynt að hanga í ágreiningi um efni, sem enginn ágreiningur ætti að vera um, vildum við til samkomulags ganga inn á þá orðabreyt., sem hér er gerð. Get ég verið mjög ánægður með, að þannig hefir tekizt, að nú eru væntanlega allir sammála um þessa till. og framgang hennar.