19.04.1937
Sameinað þing: 12. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í D-deild Alþingistíðinda. (2412)

138. mál, brunaslys í Keflavík

*Thor Thors:

Hv. þm. G.-K. getur ekki verið viðstaddur á þessum fundi og hefir beðið mig að tala í þessu máli fyrir sig. Það er þannig til komið, að samkv. beiðni hreppstjórans í Keflavík sendi hv. þm. G.-K. erindi til fjvn. með tilmælum um, að bætur yrðu greiddar þeim, sem urðu fyrir skaða af brunaslysinu.

Þar sem fullvíst er, að fjárlög verða ekki afgr. á þessu þingi, var jafnframt flutt till. um þetta í Sþ. Bættist þá þessi liðstyrkur frá jafnaðarmönnum. Vil ég mæla með, að till. verði samþ.