20.04.1937
Sameinað þing: 13. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í D-deild Alþingistíðinda. (2424)

138. mál, brunaslys í Keflavík

*Forseti (JBald):

Mér hefir borizt skrifleg brtt. frá hv. þm. G.-K. um að tillgr. orðist á þessa leið:

„Alþingi heimilar ríkisstjórninni að greiða á yfirstandandi ári allt að 5000 kr. til Keflavíkurhrepps, til greiðslu á eftirstöðvum þess kostnaðar, er leitt hefir af brunaslysunum í Keflavík hinn 30. desember 1935.“

Með því að þessi till. er bæði skrifleg og of seint fram komin, þarf tvennskonar afbrigði til þess að hún megi koma fyrir.