19.04.1937
Sameinað þing: 12. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í D-deild Alþingistíðinda. (2435)
139. mál, lagasafn
*Flm. (Jónas Jónsson):
Þær mótbárur, sem hv. þm. Snæf. kom með, þurfa ekki að rekast á mínar till., því að það tekur alltaf sinn tíma að undirbúa útgáfu lögbókarinnar, svo að það gæti verið búið að lögfesta eitthvað af þessum stóru lagabálkum, sem nú liggja fyrir, svo að þeir komist í útgáfuna, og þótt það dragist lengur að samþ. innskotið í hegningarlögin, þá gerir það ekki svo mikið til, eigi að gefa lögbókina út á 5 ára fresti. Þessar mótbárur eru því ekki veigamiklar. Þannig má segja, að fyrst Alþingi gefi alltaf út Alþt., þótt það sé allmikill kostaður við það og þau lítið notuð öðruvísi en sem ívitnunarheimild, þá sé ekki meira að gefa út lög, sem aðeins gilda nokkur ár, fyrst útgáfan er bundin við vissan tíma. Reynslan hefir orðið sú, að lögmenn, sem helzt gætu verið án lagasafns, voru mjög ánægðir yfir lögbókinni, þegar hún kom út, og svo mun fara enn, að því meira þykir mönnum varið í lögbókina, sem hún er nær því að vera í fullu gildi.