20.04.1937
Sameinað þing: 13. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í D-deild Alþingistíðinda. (2489)

85. mál, milliþinganefnd í bankalöggjöf o. fl.

*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þessi till. er fram komin fyrir tilstuðlan Framsfl., og tel ég því rétt, að ég svari því, sem hv. þm. Vestm. spurði um. Ég verð að segja eins og er, að ég get ekki svarað því nú, hvað langan tíma muni taka fyrir n. að komast að niðurstöðu um málið, heldur ekki hvort n. muni eftir nokkurt starf geta skilað einhverjum till. Ég get ekkert um þetta sagt á þessu stigi málsins, en óska aðeins eftir því, að hún ljúki störfum svo fljótt sem mögulegt er.