20.04.1937
Sameinað þing: 13. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í D-deild Alþingistíðinda. (2490)

85. mál, milliþinganefnd í bankalöggjöf o. fl.

*Jóhann Jósefsson:

Ég gleðst yfir því, að hæstv. ráðh. er á minni skoðun um þetta, og ennfremur, að hann hefir opin augun fyrir því, að það geti verið ýms mál í sambandi við bankana, sem geti krafizt úrlausnar út af fyrir sig og ekki er rétt að láta endilega bíða, þangað til heildartill. væntanlegrar n. liggur fyrir. Ég tel mig mega taka orð hæstv. ráðh. þannig, að hann muni fyrir sitt leyti leggja áherzlu á, að störfum n. verði hraðað.