20.04.1937
Sameinað þing: 13. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í D-deild Alþingistíðinda. (2495)

162. mál, dánarbætur o. fl.

*Flm. (Páll Þorbjörnsson):

Ég skal ekki hafa langa framsögu fyrir þessu. Ég get látið mér nægja, fyrir utan það, sem stendur í grg., að vísa til þeirra orða, sem ég lét falla hér áðan í sambandi við frv. til l. um breyt. á l. um alþýðutryggingar. Ég vona, að það sjái allir nauðsynina á þessu og hversu mikil réttlætiskrafa þetta er, og að málið geti fengið greiða afgreiðslu.