20.04.1937
Sameinað þing: 13. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í D-deild Alþingistíðinda. (2502)

162. mál, dánarbætur o. fl.

Forseti (JBald):

Ég hefi borið þessa till. saman við gildandi l. um alþýðutryggingar, og ég sé ekki betur en að hún brjóti í bága við 5. lið 11. gr. nefndra l. Ég sé mér því ekki fært að bera hana upp þannig orðaða, en vildi skjóta því til þeirra, sem að till standa, hvort þeir geti ekki fallizt á að koma með aðra till. með almennara orðalagi.