15.04.1937
Neðri deild: 39. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í B-deild Alþingistíðinda. (280)

14. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Út af ummælum hv. 8. landsk. vil ég mælast til þess, að í staðinn fyrir að bera fram órökstutt fleipur, leggi hann sannanir fram. Það væri honum sæmra heldur en að taka sér þessi gífuryrði í munn.