25.02.1937
Neðri deild: 9. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (337)

11. mál, alþýðutryggingar

Thor Thors:

Ég þarf ekki að deila um þetta við hæstv. atvmrh. Það hefir greinilega komið fram í umr., að hann hefir orðið að setja bráðabirgðalög um það efni, sem hann hélt fram á síðasta þingi, að væri í gildandi l., og það er það, sem um er deilt.