25.02.1937
Neðri deild: 9. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (338)

11. mál, alþýðutryggingar

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Þetta er alls ekki rétt. Meginhluti þessara manna, sem eru á þessu aldursskeiði, mundi geta fallið undir ákvæðin um örorkubætur. En það hefir sýnt sig í einum kaupstað, að ekki varð samkomulag um það, og til þess að ganga ekki á tilgang l. voru bráðabirgðalögin sett.