20.04.1937
Efri deild: 48. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í B-deild Alþingistíðinda. (408)

9. mál, fiskimálanefnd o. fl.

Jón Auðunn Jónsson:

Ég vil ekki láta því ómótmælt, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði, að hér væri stórt félag, sem væri ekki í félagi ísl. botnvörpuskipaeigenda. Það er ekki rétt. Það eru allir, sem eiga meira en eitt skip, nema eitt félag utanbæjar, sem eru í þessum félagsskap, svo að þetta er alls ekki rétt hjá hv. þm.