22.03.1937
Efri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í B-deild Alþingistíðinda. (472)

37. mál, sala Sanda í Dýrafirði

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Aðeins örfá orð. N. er sammála um að frv. þetta verði, samþ. með einni lítilfjörlegri breyt. Í frv. stendur í 2. gr., að kaupverðið greiðist eins og venja er til samkv. l. frá 16. nóv. 1907. En nú er búið að nema þessi l. úr gildi og þess vegna ekki hægt að tala um neina venju í þessu sambandi. N. leggur því til, að þetta verði orðað svo: Kaupverðið greiðist eins og fyrir var mælt í l. nr. 50 16. nóv. 1907.

Ég hefi ekki annað um þetta að segja. N. var, eins og ég gat um, einhuga um, að þetta verði leyft.