20.03.1937
Efri deild: 24. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í B-deild Alþingistíðinda. (48)

6. mál, verðtollur

*Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Þetta frv. kemur frá Nd. og gengur út á að framlengja til ársloka 1933 öll gildandi lagaákvæði um verðtoll. Fjhn. Ed. telur ekki vera hægt að komast hjá þessu og leggur því til, að frv. verði samþ. Einn nm., hv. 1. þm. Reykv., hefir þó skrifað undir nál. með fyrirvara. N. hefir borið frv. saman við þau lög, sem þar er vitnað til, og er það allt rétt.