23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í B-deild Alþingistíðinda. (513)

86. mál, alþýðutryggingar

Frsm. minni hl. (Garðar Þorsteinsson):

Ég styð það, sem hv. 6. þm. Reykv. hefir sagt. Auk þess vil ég benda á, að hv. 1. landsk. hefir boðað nál. í dag. Virtist hann vera frsm. einhvers meiri hl. í einhverri n. og var að tala um, að allir nm. hefðu verið sammála. Ég dró þetta í efa, og óska, að nál. þessara fjögra manna komi fram og hæstv. forseti fresti málinu þangað til.