23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í B-deild Alþingistíðinda. (518)

86. mál, alþýðutryggingar

Stefán Jóh. Stefánsson:

Ég þarf í rauninni ekki að segja neitt, fyrst hæstv. forseti hefir skýrt þetta mál, en ég vil þó mótmæla því sem gersamlega röngu, að ég hafi hér talað nokkuð í umboði meiri hl. allshn. án þess að bak við mig væri samþykki þeirra, sem ég talaði fyrir. Ég átti tal við þessa menn í allshn., og þeir voru allir sammála um að vera með þessu frv., nema hv. 8. landsk. Þetta er því slúður eitt og getsakir, sem haldið er fram.